Hagnýtar upplýsingar

Skrifstofa

Opnunartími skrifstofu er alla virka daga frá 8:00-15:00.

Skrifstofustjóri er Kalla Björg Karlsdóttir

Skóladagurinn

Skóladagurinn hefst hjá nemendum í 1. - 7. bekk kl. 8.30.

Skóla lýkur hjá 1. – 4. bekk kl. 13:40 og hjá 5. – 7. bekk kl. 14:20.

Fyrri frímínútur eru kl. 9:50 – 10:10 hjá 1. – 7. bekk.

Hádegismatur er hjá 1. - 4. bekk kl. 11:30 - 11:50 og hjá 5. - 7. bekk kl. 12:10 - 12:30

Forfallatilkynningar

Forföll skal tilkynna í Mentor eða hringja á skrifstofu skólans við upphaf skóladags. Tilkynna þarf veikindi daglega ef um fleiri en einn dag er að ræða. Þegar nemandi kemur aftur í skólann eftir veikindi getur hann fengið að vera einn dag inni í frímínútum. Ef nemandi þarf leyfi í 2 daga eða fleiri þá þarf að sækja um það sérstaklega á skrifstofu skólans. Foreldrar hafa samband við umsjónarkennara þegar farið er í lengri leyfi á skólatíma. 

Morgungæsla

Morgungæsla er í boði fyrir börn í 1. – 2. bekk frá kl. 8.00 og fer skráning fram hjá skrifstofustjóra.

Hafragrautur

Hafragrautur er í boði fyrir fjölskyldur skólans alla morgna frá 8:10-8:29. 

Skólaíþróttir

Íþróttir eru kenndar í íþróttasal skólans. Íþróttir eru kenndar úti frá upphafi skóla og út september og í maí. Börn eiga að vera í klædd eftir veðri og í þægilegum fatnaði sem henta hreyfingu. 

Nemendur fara í skólasund í Vesturbæjarlaug og er hópum ekið til og frá skóla í laugina. 

Nesti

Börnin eiga að koma með hollt nesti í skólann. Hollt fæði stuðlar að vellíðan nemenda og eykur hæfni til náms. Í skólanum eru börn sem eru með ofnæmi fyrir hnetum, eggjum og kiwi og því bannað að koma með það í nesti.

Nemendur nota fjölnota brúsa fyrir vatn og koma með nesti að heiman í fjölnota umbúðum. Matarleifar úr morgunhressingu taka nemendur með sér heim aftur, meðal annars til að foreldrar geti séð hvað barnið borðaði af nestinu sínu. Aðeins eru leyfðar fjölnota umbúðir í skólanum.

Við hvetjum foreldra til að senda börnin með ávexti og grænmeti í nesti.

Óskilamunir

Við hvetjum foreldra til að merkja föt og eigur barnanna því þá er líklegra að það skili sér til barnanna fljótt aftur. Óskilamuni er að finna við innganga hjá 1. og 2. bekk og hjá rampi þar sem börn í 3. - 7. bekk koma inn. Við bendum einnig á að óskilamuni er að finna í Skýjaborgum og Frostheimum. 

Frímínútur

Öll börn í 1.-7. bekk fara út í frímínútur. Kennarar og stuðningsfulltrúar sjá um gæslu á skólalóð. Í morgunfrímínútum er 1.-7. bekkur saman. Nemendur fara alltaf út í frímínútur nema með sérstökum undantekningum og sérstöku skipulagi. Á skólatíma er skólalóðin einungis ætluð nemendum skólans. 

Frístund

Frístundaheimilið Skýjaborgir er við Vesturbæjarskóla fyrir börn í 1. og 2. bekk, safnfrístundin Frostheimar er fyrir börn í 3. - 4. bekk og félagsmiðstöðin Frosti er fyrir elstu börn skólans í 5. - 7. bekk.