Heilsuvernd í Vesturbæjarskóla

Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmiðið er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við forsjáraðila, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Þjónusta heilsuverndar skólabarna er skráð í rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar. Skólahjúkrunarfræðingur Vesturbæjarskóla starfar á vegum heilsugæslunnar Miðbæ.  

Helstu áherslur í heilsuvernd skólabarna eru forvarnir, heilbrigðisfræðsla, skimanir og bólusetningar. Unnið er samkvæmt leiðbeiningum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu um heilsuvernd grunnskólabarna. Frekari upplýsingar um heilsuvernd skólabarna má finna á heilsuvera.is undir leitarorði „heilsuvernd grunnskólabarna“.

Teiknuð mynd af barni, kennara og foreldri sem sitja saman við borð.

Hagnýtar upplýsingar

Veikindi og slys 

Ef óhapp eða slys verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæsluna eða slysadeild skulu forsjáraðilar fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í þá á skólatíma barnsins. Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af heilsuvernd skólabarna. 

Langveik börn 

Mikilvægt er að hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd skólabarna viti af börnum sem eru með fötlun eða langvinnan og/eða alvarlegan sjúkdóm, s.s. sykursýki, ofnæmi, flogaveiki, blæðingarsjúkdóma eða aðra alvarlega sjúkdóma. Hlutverk hjúkrunarfræðingsins í heilsuvernd skólabarna er að skapa þessum börnum viðeigandi aðstæður og umönnun í skólanum í samvinnu við foreldra/forsjáraðila og starfsfólk skólans. 

Lyfjagjafir 

Samkvæmt tilmælum landlæknis um lyfjagjafir í grunnskólum eru sérstakar vinnureglur varðandi lyfjagjafir til nemenda á skólatíma. Mikilvægt er að forsjáraðilar barna sem þurfa að taka lyf á skólatíma hafi samband við hjúkrunarfræðing í skólanum.

Hlutverk og verkefni skólaheilsugæslu

1. bekkur (6 ára)

Mæld er hæð, þyngd og sjónprófað. Sjónpróf er svokallað sjónskerpupróf og mælir nærsýni. Barn getur því reynst með fjarsýni eða sjónskekkju án þess að það komi fram í prófinu. Farið er yfir ungbarnaskoðanir og þeir sem ekki hafa farið í fimm ára skoðun á heilsugæslustöð er vísað áfram í endurbólusetningu gegn barnaveiki, stífkrampa og kíghósta (í einni sprautu/Boosterix®). Haft er samband við foreldra ef upplýsingar um bólusetningar barns þess finnast ekki.

4. bekkur (9 ára)

Mæld er hæð, þyngd og sjónprófað.

7. bekkur (12 ára)

Mæld er hæð, þyngd og sjónprófað. Endurbólusetning gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum (í einni sprautu/Priorix®). Stúlkum í 7. bekk er einnig boðin bólusetning gegn HPV(leghálskrabbameini). Um er að ræða tvær sprautur yfir árið og notast er við bóluefnið Cervarix®.

Einnig er tekið stutt viðtal við börnin um lífsstíl og líðan í þessum skoðunum. Fylgst er með nemendum í öðrum árgöngum eftir þörfum. 

Skólahjúkrunarfræðingur

Skólahjúkrunarfræðingur er Ester Böðvarsdóttir

 

vesturbaejarskoli@heilsugaeslan.is

Frekari upplýsingar um skólaheilsugæsluna má finna á www.heilsuvera.is.