Vesturbæjarskóli Parent Association
Vesturbæjarskóli has an active parent association as per the Compulsory School Act. The board of the parent association is usually elected at its general meeting at the start of the school year.
Parent Association Board 2024-2025
A list goes below
Samskipti foreldra
Foreldrasamstarf er mikilvægur hluti af uppeldi og skólagöngu barna okkar. Rannsóknir hafa sýnt fram á forvarnargildi samstíga foreldrahóps auk þess sem foreldrar gegna mikilvægu hlutverki að styðja við og stuðla að góðri menningu innan barnahópsins. Þá er ómetanlegur stuðningur fyrir foreldra að hafa breitt tengslanet í öðrum foreldrum í nærsamfélaginu, þeir taka upplýstari ákvarðanir og geta verið öflug rödd umbóta. Þannig geta þeir unnið gegn einelti og fordómum og stuðlað að auknum skilningi og umburðarlyndi milli fjölbreyttra hópa. Foreldrastarfið gefur foreldrum einnig tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á vináttu barna og í leiðinni auðga eigið félagslíf.
Vinahópar
Vinahópar ganga út á það að bekkjarsystkin kynnist hvert öðru og að öll í bekknum séu vinir. Bekkjarfulltrúar sjá til þess að verkefnið fari af stað með því að hafa samband við kennara. Bekknum er skipt í 4-5 barna hópa sem hittast einu sinni í mánuði heima hjá hverju barni um sig. Þegar öll börn hafa haldið vinahóp þá býr kennari bekkjarins til nýja hópa og svo koll af kolli. Foreldrar barna sem halda vinahóp heima hjá sér er ætla að stuðla að jákvæðri og góðri samveru barnanna í hópnum.

Vinafjölskyldur
Vinafjölskyldur efla tengsl og stuðla að auknu jafnræði meðal barna í Vesturbæjarskóla. Með vináttu og virðingu að leiðarljósi styðja fjölskyldur, sem þekkja skólasamfélagið, við fjölskyldur nýrra barna í skólanum. Markmið vinafjölskyldna er að öll börn hafi tækifæri til að taka þátt í skólasamfélaginu og njóti stuðnings fjölskyldu sinnar. Áhersla er lögð á móttöku fjölskyldna af erlendum uppruna, en verkefnið takmarkast þó ekki við þann hóp. Vinafjölskyldur styðja við markmið Réttindaskóla UNICEF. Markmið Réttindaskóla er að byggja upp lýðræðislegt umhverfi með því að rækta þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpa börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í nútímasamfélagi. Í Réttindaskólum læra börn um mannréttindi sín og er réttindum þeirra fylgt eftir í skipulagi skólans, m.a. í samskiptum barna, kennara, starfsfólks, foreldra og frístundaleiðbeinenda. Þær Sesselja Th. Ólafsdóttir, Margrét Gylfadóttir og Maria Helena Sarabia hleyptu Vinafjölskylduverkefninu af stokkunum árið 2008.
