Heilsugæsla í Vesturbæjarskóla

Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmiðið er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Þjónusta heilsuverndar skólabarna er skráð í rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar. Skólahjúkrunarfræðingur Vesturbæjarskóla starfar á vegum heilsugæslunnar Miðbæ.  

Fræðsla og forvarnir

Skólaheilsugæslan sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta í öllum bekkjum. Öll tækifæri sem gefast eru nýtt til að fræða nemendur og vekja þau til umhugsunar og ábyrgðar á eigin heilsu. Árleg heilsuvika í skólanum er nýtt sérstaklega til þess. Foreldrar eru hvattir til að leita eftir ráðgjöf skólahjúkrunarfræðings varðandi vellíðan, andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði barnsins eða ef einhverjar aðrar spurningar vakna.

Teiknuð mynd af barni, kennara og foreldri sem sitja saman við borð.

Hlutverk og verkefni skólaheilsugæslu

1. bekkur (6 ára)

Mæld er hæð, þyngd og sjónprófað. Sjónpróf er svokallað sjónskerpupróf og mælir nærsýni. Barn getur því reynst með fjarsýni eða sjónskekkju án þess að það komi fram í prófinu. Farið er yfir ungbarnaskoðanir og þeir sem ekki hafa farið í fimm ára skoðun á heilsugæslustöð er vísað áfram í endurbólusetningu gegn barnaveiki, stífkrampa og kíghósta (í einni sprautu/Boosterix®). Haft er samband við foreldra ef upplýsingar um bólusetningar barns þess finnast ekki.

4. bekkur (9 ára)

Mæld er hæð, þyngd og sjónprófað.

7. bekkur (12 ára)

Mæld er hæð, þyngd og sjónprófað. Endurbólusetning gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum (í einni sprautu/Priorix®). Stúlkum í 7. bekk er einnig boðin bólusetning gegn HPV(leghálskrabbameini). Um er að ræða tvær sprautur yfir árið og notast er við bóluefnið Cervarix®.

Einnig er tekið stutt viðtal við börnin um lífsstíl og líðan í þessum skoðunum. Fylgst er með nemendum í öðrum árgöngum eftir þörfum. 

Skólahjúkrunarfræðingur

Skólahjúkrunarfræðingur er Ester Böðvarsdóttir

 

Ester.Bodvarsdottir@heilsugaeslan.is

Frekari upplýsingar um skólaheilsugæsluna má finna á www.heilsuvera.is.