Skóladagatal Vesturbæjarskóla

Teikning af litríkum skólatöskum.

Skóladagatal er gefið út fyrir hvert skólaár. Skóladagatalið sýnir þá daga sem nemendur eiga að vera í skólanum, hvaða daga er vikið frá hefðbundnum skóladegi og hvaða daga nemendur eiga frí. Þú getur bæði náð í þitt eigið gagnvirka skóladagatal og pdf útgáfu af skóladagatalinu til að prenta út.

Samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga við Kennarasambands Íslands skulu 180 lögbundnir skóladagar nemenda vera á tímabilinu 20. ágúst til 10. júní. Sérstakir starfsdagar kennara á starfstíma nemenda eru fimm og skulu ákveðnir af skólastjóra í samráði við kennara og með hliðsjón af kjarasamningum. Starfsdagar kennara utan starfstíma nemenda eru 8. 

Viltu verða áskrifandi að skóladagatalinu?

Þegar þú ert áskrifandi að skóladagatalinu sérðu breytingar sem eru gerðar á dagatalinu í rauntíma. Þú getur bætt skóladagatalinu við þína eigin dagbók.

Til að bæta skóladagatalinu í Outlook dagbók: 

  • Bæta dagbók við.
  • Gerast áskrifandi á vefnum.
  • Líma inn ICS skránna (tengillinn).
  • Skrifa nafn Dagbókar (tákn og litur er valkvætt).
  • Velja hvaða dagbók áskriftin af skóladagatalinu á að birtast í fellilistanum fyrir neðan og smella á hnappinn flytja inn.
  • Skóladagatal ætti að birtast í hliðarstikunni.

Til að bæta bæta áskriftinni í Google dagbók:

  • Smella á plúsinn og velja from URL.
  • Líma inn ICS skránna (tengillinn). 
  • Smella á Add Calender.
  • Skóladagatal ætti að birtast í hliðarstikunni.