Stuðningsþjónusta
Stefna Reykjavíkurborgar um sérkennslu og stuðning hefur skóla án aðgreiningar að megin leiðarljósi. Í því felst að skólinn veiti öllum nemendum sínum þjónustu fötluðum jafnt sem ófötluðum. Kennaranum er ætlað að aðlaga kennslu sína að nemendahópnum og þarf því að beita mismunandi kennsluaðferðum og vera með mismunandi viðfangsefni fyrir nemendur sína.
Stoðþjónusta í Vesturbæjarskóla
Vesturbæjarskóli er skóli án aðgreiningar sem þýðir að nemendur stunda einstaklingsmiðað nám. Gert ráð fyrir því að nemandinn stundi nám sitt í sínum námshópi með eða án stuðnings. Stuðningur getur einnig farið fram utan námshóps. Mat á þörf einstakra nemenda fyrir sérstakan stuðning sem kallar á breytingu á innihaldi náms, kennsluaðferðum og/eða kennsluaðstæðum fer fram í samráði við foreldra.
Þjónustumiðstöð hverfisins er Vesturmiðstöð en þangað sækir skólinn þjónustu skólasálfræðings, ráðgjöf hjá kennsluráðgjafa og félagsráðgjafa.
Heilsugæsla
Skólaheilsugæsla sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta.
Menntun fyrir alla
Í grunnskólum Reykjavíkur er sérhverju barni mætt í námi óháð atgervi þess og stöðu.
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana.
Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Tengiliðir farsældar í Vesturbæjarskóla eru: